janúar 4, 2009 eftir lettfimmtug
Kæru bloggvinir,
Ég er enn á lífi og í góðum málum. Hef lítið bloggað hér vegna anna og önnur ástæða er að ég blogga á öðrum stað undir eigin nafni þar sem ég matartengi bloggið mitt ekki nema eitthvað fréttnæmt sé á mbl.is.
Nóvember og desember voru órólegir mánuðir og tókst mér ekki að halda mér í matarplani nema nokkra daga og í mesta lagi 3 vikur og fór ég síðan beint á bústinn rassinn aftur. Samt hef ég lést og er enn að léttast, þökk sé hreyfingu og pásu á milli átkasta
Ég stefni á heilbrigðan lífsstíl bæði matar- og hreyfingarlega séð.
Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »
desember 3, 2008 eftir lettfimmtug
Við matarpúkann. Ég er orðin þreytt á matarplönum, vigtun og mælingu. Þreytt að vera með hausinn fullan af megrun. Mig langar í frið frá púkanum. En þrátt fyrir allt þetta þá er vigtin á niðurleið, það fer ca. kíló á mánuði.
Er nú á fullu að undirbúa mig undir próf og er að lesa og skrifa mér til óbóta, nei ekki satt. Ég er bara að lesa almennt lestrarefni undir próf og skipuleggja lesturinn.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 26, 2008 eftir lettfimmtug
Jæja, ég er ekki eins brjáluð og ég var í fyrradag þar sem ég lét öllum illum látum. Skrifaði pósta hingað og þangað og tuðaði eins og uppblásin eiginkonudúkka þegar loftið lekur úr henni.
Ég hef ekki stjórn á því sem er að gerast í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ég er farþegi á þessu skipi og fæ ekki að taka í stýrið enda efins um að ég hafi þá kunnáttu sem til þarf að reka eitt stór 300.000 manna heimili. Ég er fín í að stýra lítilli einingu með ágætum árangri.
Núna eru próf framundan og verkefnaskil og ég stóð skil á einu í gær. Nú ætla ég bara að treysta að það sem ég hef lært í vetur skili sér sem ágætar einkunnir og að ég færist skammarlaust á milli áfanga og anna.
Ég tók hliðarspor á matarplaninu sl. 2 daga en það geri ég gjarnan þegar ég æsi mig upp sbr. þegar ribbaldarnir 30 komu við sögu. En þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af því ég er í góðum málum.
Kveð að sinni
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 24, 2008 eftir lettfimmtug
Ég segi ekki að ég sé rólyndismanneskja en það hefur bráð af mér eftir því sem árin færast yfir mig, en nú langar mig til að berja all verulega á steinsteyptum veggjum Kauþings niðri í Borgartúni. Allt mitt/okkar virðist vera farið og við sem héldum að hluti þess sparifés sem við ætluðum að geyma til mögru áranna væri borgið hjá þessu stóra og mikla fyrirtæki sem fór þeysireið um Evrópu. En nú hafa málin snúist við eftir að við (íslendingar) fengum lán hjá IMF, litla fólkið með pínulitlu milljónirnar sínar þarf að lúta í lægri kantinn svo hægt sé að greiða þeim úti í heimi innistæður sínar. Við hér á Íslandi erum fórnarkostnaður nokkurra manna sem eru ekki skömminni skárri en herskáir einræðisherrar vanþróðuðu þjóðanna. Að vísu er ekki skotið á okkur, konum er ekki nauðgað og menn ekki fangelsaðir en við erum svipt lífsviðurværi okkar. Fyrst töpum við vinnunni svo töpum við því sem við höfum lagt fyrir til að eiga þegar eitthvað kæmi fyrir…
Björgúlfur segir að þetta sé fólkinu að kenna því það hafi farið í kaupæði að sögn DV í dag. Ég veit ekki hvað hinir 29 segja um okkur aumingjana sem höfum látið lokka okkur til að leggja allt okkar í þeirra sjóði (við vorum ekki svo vitlaus að taka lán sem betur fer) og svo les maður að sonur forstjóra Kauphallarinnar hafi tekið til sín stjóra sjóði og þvegið peninga svo um munar..
Hvur djöfullinn er í gangi. Nú vil ég að þessir menn verði kallaðir til ábyrgða og þeir látnir skila inn eignum sínum svo þjóðin geti borgað eitthvað af þeim skuldum sem þeir stofnuðu til.
En fjandinn hafi það, ég ætla ekki að borða út á þessar fréttir.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 18, 2008 eftir lettfimmtug
Ætli þetta verði ekki eitt af þessum blótsbloggum, fullt af ótta og sjálfsvorkun? Það er stundum ágætis krydd við utanborðs vandamál (þjóðfélagslega ruglið sem er í gangi) að fyllast kvíða yfir eigin tilveru, vanköntum og sérvalsheimsku. Ég er svo hrædd að ég rek við upp í vindinn í hvert skipti sem þáttun, liðun, jafna og Gylfaginning í kross við málsögu kemur fyrir augu mér… það tæmist á mér hausinn og allt það sem lesið hefur verið og reiknað hreinlega fýkur út í fúlann vindinn. Ég stari á svartar klessurnar sem mynda formúlur, orð og undarlegar setningaskipan og sían á milli augna og heila verður svartþétt og hleypur engu í gegn. Ég er semsagt ekki þessi duglegi námsmaður sem með eljusemi nær að ganga í gegnum próf kvíðalaust. Ansans draugurinn frá því á unglingsárum hefur setið fast á öxlinni á mér og neytir nú tækifæris að gera mér lífið leitt og hefur fundið sér fastan sess rétt fyrir neðan bringspalirnar á mér. Hann æsir upp í mér löngunina að hella mér á kaf í dökkt súkkulaði fylltu með kirsjuberjahlaupi, ekki bara einum mola, nei, mörgum kannski 100. En ég, þessi staðfasta í dag stenst freistinguna og held mig við hlöss af grænmeti og hnefafylli af próteini í hvert mál minnug þess að ég á mér draum um að setja á gráan kollinn hvíta húfu í vor í grönnum líkama, skapa það augnablik er ég lét renna mér úr greipum tvítugri. Ég skal, ég vil, ég get… sigrað frammistöðukvíða skrattann.
V&M gekk vel í dag.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 17, 2008 eftir lettfimmtug
Ég er ekki að segja að Bjarni framsókn og Guðni formaður séu frændur mínir. Báðir hafa kosið af hverfa af vettvangi pólitíkusunnar. Bjarni vegna óþekktarskaps síns og tímabundinnar illgirni í garð Valgerðar og Guðni? Jah… afþví að hann finnur ekki lengur neina samstöðu innan flokksins? Veit ekki því ég var ekki fluga á vegg. Verð að segja hinum skrollmælta Bjarna til hróss, hann viðurkenndi bresti sína og sagði af sér, ég hef ekki heyrt né séð neinn fyrr gera það í pólitík nema menn hafi viljað stofna nýja flokka. Auðvitað yfirgefa menn sökkvandi skip og núna eru bara rotturnar eftir, Guð hjálpi mér að taka svona til orða. Ég treysti varla nokkrum manni eða konu lengur á hinu háa tvíárþúsunda Alþingi, menn ljúga í kross eins og þegar ég þarf að margfalda jöfnu í kross. Það er ekkert til sem heitir sannleiksgildi og hver og einn rótar í sínum eigin sandkassa og fyllir fötur af kattarskítsfylltum sandi.
Er ég hneyksluð? Nei, eiginlega ekki. Það hlaut að koma að því að allt springi í loft upp og menn réðu ekki lengur við sukkið frekar en hömlulausi átsjúklingurinn sem að lokum springur af öllu leyndarátinu. Stjórn landsins og þeir sem hafa farið fyrir útrásinni eru nú búnir að keyra sig í kaf og eru enn á afréttarstiginu og ráfa um þvoglumæltir og skrökvandi bláir, grænir, rauðir og gulir (ef hann er pólitískt til) þar til þeir vita ekki í hvorn óæðri afturendann á að líta. Verslings mennirnir/konurnar… þetta er ægilegt ástand og ætli þeir gerist ekki bara landflótta og halda að þeir geti þannig lagað eigið vandamál. Í fræðunum mínum er talað um Geografical move (landfræðilegur flótti) þegar fíkillinn heldur að með því að færa sig um set nái hann stjórn á fíkn sinni og allt verði í lagi. Ég reyndi slíkt hið sama fyrir tæpum 30 árum síðan og komst að því að ég elti sjálfa mig og fíknin með. Samt náði ég að hætta vitleysunni að einum hluta til en hélt annarri og held ennþá að það að færa mig til gefi mér árangur.
Jæja, ég bið þessu fólki Guðsblessunar en ég og V&M erum að standa okkur vel og erum fínir buddies þessa dagana. Buxunar að víkka og skapið að batna í sykurleysinu.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 16, 2008 eftir lettfimmtug
Ég fór á mótmælafundinn á Austurvelli í gær, að vísu bara hluta af honum þar sem ég er alltaf upptekin til rúmlega þrjú á laugardögum. Ég hlustaði á snilldarræðu Andra Snæs rithöfundar og var stemmningin góð ef svo mætti kalla, fólk rólegt og yfirvegað og mótmælum komið mjög vel á framfæri. Mér líkar vel við friðsamleg mótmæli, þar sem ég tel að árangur náist best þannig heldur en að beitt sé ofbeldi eða neikvæðum þrýstingi. Að vísu voru þarna spjöld sem úthúðuðu stjórnendum landsins, ekkert sjálfsagðara því þetta er það sem fylgir pakkanum þegar maður gefur sig út fyrir að stjórna heillri þjóð.
Mig myndi langa til að kíkja í sálartetur þeirra manna sem hafa stjórnað landinu ásamt útrásarvíkingum sem hafa umbreytt sjálfsmynd Íslands í peningahyggju. Spyr sjálfa mig hvort þessir menn upplifi skömm og vanmátt yfir þeirri stöðu sem heil þjóð er í núna? Eða hvort menn séu algerlega lokaðir fyrir eigin ábyrgð og þess að hluta til hafi þeir verið valdir að því að við erum svona fjári illa stödd þessa dagana.
Hinn almenni launþegi er ekki lengur maðurinn á bak við vélina sem er burðarstóll íslensks atvinnulífs. Nei, launþeginn er kostnaðarliður sem losað er við þegar að kreppir. Það skiptir meira máli að stjórnendur fái að halda Lexusnum eða Cruisernum heldur en að sá sem hefur lagt allt sitt að veði fyrir fyrirtækið. Honum er dömpað og hent út á götuna. Það eru fjölmargir í þessari stöðu núna og margir sem hafa ekki efni á því að vera atvinnulausir og munu fara virkilega illa út úr þessum erfiðleikum sem dynja á okkur núna.
Græðgin hefur rekið okkur áfram (ég engin undantekning) síðustu ár og við höfum flest sofið á verðinum. Ég dæmi ekki eingöngu stjórnendur landsins og fyrirtækja, við hin erum líka að hluta til ábyrg af því við sögðum ekki neitt og létum blekkjast af því sem okkur bauðst. Þó er það svo að það afsakar aldrei misyndismanninn að fórnarlambið þegi og láti berja sig.
V&M og ég erum góðir félagar.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 15, 2008 eftir lettfimmtug
Mig er stöðugt að dreyma og er eins og unglingur hvað það varðar. Best er að kúra undir heitri sæng og hverfa á vit draumaheims, en ég kann það ekki lengur. Fullorðnisárin hafa breytt mér og gert mig að manneskju sem vill hafa reglu á hlutunu og það þýðir að vakna á sama tíma á hverjum degi, klukkan 9.35
en suma daga klukkan 7.20…
Síðan ég og V&M hófu samferð hafa farið 3kg
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 14, 2008 eftir lettfimmtug
Maður spyr sig, hvað er í gangi? Ég er ekki farin að átta mig almennilega á þeirri breytingu sem er að verða í þjóðfélagi okkar. Finn að sjálfsögðu fyrir því sem nálægt mér er s.s. eigið atvinnuleysi (sem ég fylli upp í með skólanámi), breytingar á högum eiginmannsins og það að bankinn hefur tekið traustataki sparnaðinn okkar og er óvíst hvort hann náist út. Peningana kalla ég loftpeninga, eitthvað sem var/er þarna á bók og átti að notast þegar að eftirlaunaaldri væri komið, eða þegar breytingar yrðu á fjárhagshögum okkar. Nú er þetta fast í banka eins og kílóin föst á hömlulausri ofætu. Ég veit ekkert hvernig ég á að bregðast við þessu nema bara að vona að heilsa haldist bæði andlega og líkamlega. Þjóðin hefur eflaust ekki verið dugleg við að “secreta” til lengdar góðærið sem hefur tröllriðið okkur sl. ár en “secretið” hefur snúist í andhverfu sína og sýnir nú dökku hliðar andlits síns.
Mig dreymdi í nótt að styrjaldarástand herjaði á þjóðina og það var upplausn. Nokkurskonar borgarastyrjöld í okkar litla landi og fólk illilega reitt og tilbúið til að lemja og berja. Í þessum sama draumi birtist mér stjörnubjartur himinn eins og mig langar svo til að líta eigin augum. Stjörnuryk sem barst til jarðar í öllu sínu glitri öllum þeim sem sáu til mikillar gleði og spennu, en glampandi glitrið reyndist síðar illa eitrað. Þarna er að verki hjá mér undirmeðvitund min sem óttast allt hið versta en vonar að hið stóra og bjarta komi til bjargar.
Á eftir: Nudd og síðan ánægjuleg heimsókn til konu sem kann að hlusta. Ég ætla líka að trampa á Vigtoríu til að kanna árangur síðasta mánaðar.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
nóvember 11, 2008 eftir lettfimmtug
Dellin mín er komin með stærra minni og ver ég nú minni tíma í tölvunni þar sem ég þarf ekki lengur að bíða eftir því að hún komi upp með síður eða pósta. Þvílíkur munur, vildi bara að þetta væri hægt með heilann á manni.
Mér finnst eins og það sé komið vor og að kýrnar séu að hlaupa glaðar um haga. Einhver gleði í mér og ég get ekki einu sinni reiðst honum Framsóknar Bjarna fyrir klaufaskapinn í sér, en það kemst alltaf upp um mann um síðir.
Verður ekki bara allt gott að lokum? – Ég og V&M eigum góða samleið í dag.
Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »