Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for september, 2007

Helgarlok

Sunnudagsmorgnarnir geta verið mér erfiðir í taumi.  Það er stundum erfitt að vakna og drífa sig framúr vitandi að þetta er síðasti frídagurinn og að framundan sé vinnuvika með öllu tilheyrandi.
Það er þessi stirðleiki sem er að gera útaf við mig bæði líkam- og huglæglega séð.  Í morgun reyndi ég hvað ég gat að kúra [...]

Read Full Post »

Á laugardagsmorgun er kaffibollinn og ristaða brauðið með bláberjasultunni og ostinum það eina sem ég skynja þegar ég stíg nakin fram úr rúminu eftir órólegar draumfarir þegar ég reyni að sofa frameftir eins og unglingur. 
Þar sem ég er komin með tábergssig þá er göngulag mitt heldur stirðbusalegt þegar ég æði (á hraða skjaldbökunnar) fram í [...]

Read Full Post »

Rósótta blússan

Í dag eins og í gær þá er ég í rósóttu blússunni sem ein góð stúlka á besta aldri hjálpaði mér að velja. Það dásamlega við þessa blússu er að hún felur blettina sem eiga það til að detta niður á barminn þegar ég er að lofsyngja það sem heltekur mig þessa dagana þ.e. maturinn [...]

Read Full Post »

Hið dásamlega regn

Þegar ég lít yfir vinstri öxlina á mér og út um gluggann á vinnustaðnum þar sem ég er dæmd til stólsetu frá níu til fimm, orðin puttalúin af lyklaborðatikki og dálítið appelsínubarkaklístruð á fingrunum þá blasir við mér þessi rosa krani sem er búinn að loka fyrir útsýnið sem ég hafði til fjallanna. Núna verða [...]

Read Full Post »

Ég er svo flott

Þegar rokið rífur í stutt hárið, lyftir upp blússunni og sýnir fallega barminn minn, sem er orðinn æði föngulegur eftir að ég hætti að vera í megrun, fráhaldi, aðhaldi, svakahaldi og brjóstahaldi, þá fer um mig svona ánægjuhrollstilfinning um að vera komin á þennan aldur þegar holdið ræður ekki lengur við sig.  Stundum dregst það saman [...]

Read Full Post »

Skyldi maður þora eina ferðina enn?  Að skrásetja daglegar hugarflugur og það sem drífur á dag manns einn dag í einu.
Þetta er almennt blogg konu sem er að ferðast inn í seinni hluta lífs síns og  ætlar sér að eiga ca. 30 ár til viðbótar á þessari jörð í blíðu og stríðu í samskiputum við [...]

Read Full Post »