Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for október, 2007

Það að tyggja tyggjó hefur sínar góðu hliðar, held ég! Veit ekki afhverju ég rita þessa fáránlegu setningu.  Gæti kannski stafað afþví að ég hef fátt að segja sem myndi kæta einhvern.  Vinnudagurinn langur þó svo hann væri bara átta tímar.  Myrkrið er svo svart núna þegar snjórinn hefur horfið.  Kann betur við mig þegar [...]

Read Full Post »

Frostbitin

Stundum eru færslur snubbóttar og stuttar. Mínar stuttu og snubbóttu eru í dag þegar vetur herjar á og ég fæ þessa góðu súkkulaðibolla tilfinningu í hjartað.  Hugurinn reikar vestur á land til barnæskunnar, frostbitinna táa og blautra lopapeysna.  Veturinn í hámarki og krakkarnir á leik í hvítri fönninni með rjóða vanga og bros á vör.  [...]

Read Full Post »

Handritið heim

Ég hef undir höndum þykkan bunka.  Þessi bunki inniheldur sögu stúlku sem bjargaðist að sjálfsdáðum úr klóm eigin óvinar.  Það gætir dálítillar spennu þegar ég renni augunum yfir blaðsíðurnar sem eru útkrotaðar af leiðréttingum og ekki laust við ótta þegar ég fletti þeim áfram.  Spyr sjálfa mig hvað úr þessu sköpunarverki mínu verði.  Ætli ég Secreti [...]

Read Full Post »

Sunnudagshugvekja

Það er svo sannarlega kominn vetur.  Jörðin hvít og hálka farin að setjast á götur Reykjavíkurborgar.   Ég er komin á nagla og þakka mínum Guði fyrir að vera ekki á ónýtum sléttum sumardekkjum, kann ekki að keyra þannig á veturnar, enda kerling á sextugsaldri.  Læt mér það duga að vera ökuníðingur á sumrin þegar ég [...]

Read Full Post »

Grafarþögn

Dagurinn í gær var erfiður.  Fylgdi ungum frænda til grafar og fann sárt til með foreldrum hans, bræðrum, frændfólki og vinum.  Mín tilfinning er sú að það eiga engir foreldrar að þurfa að fylgja börnum sínum til grafar, eitthvað svo skakkt við það. 
Hef sjálf fylgt tveimur af mínum börnum til grafar og þekki það [...]

Read Full Post »

Strúturinn

Stundum er ég eins og strúturinn sem stingur höfðinu í sandinn, ég hreinlega neita að horfast í augu við ákveðnar staðreyndir. Ég hef verið að safna á mig vetrarforða síðustu mánuði og ekkert skilið í því hvað föt hafa hlaupið í þvotti. Svo hefur mér líka verið ákaflega illa við spegla sem sýna eitthvað meira [...]

Read Full Post »

Afmæli

Í dag á lítil stúlka afmæli. Heil sextán ár síðan hún fæddist síðla kvölds eftir að reynt var að koma í veg fyrir ótímabæra fæðingu. Tæplegt kíló vóg hún þegar hún skaust í heiminn rétt fyrir klukka ellefu að kveldi miðvikudags 1991. Það voru erfiðar tímar sem tóku við eftir fæðinguna, heilablæðing, fötlun og eilífar [...]

Read Full Post »

Himinroði

Helgin í Skálholti var æði fín. Skemmtilegar konur og fínar uppákomur.  Léttfimmtug tók að sér eldamennsku ásamt annarri konu í bata og gekk það svona ljómandi fínt fyrir sig.  Stjörnurnar létu ekki að sér hæða og himinhvolfið var sveiðpað grárri skýjaslæðu sem voru upplituð af ljósum gróðurhúsa Flúðabúa.  Það er gott að geta gengið að [...]

Read Full Post »

Appelsínufingur

Nýbúin að taka börkinni utan af mjúkri appelsínunni og fingurnir mínir eru klístraðir en ilma jafnframt af þessum ljúfa náttúrulega ilmi.  Ef ég loka augunum þá kemur þessi tilfinning yfir mig að jólin séu á næstu grösum.  Ég útliloka öll umhverfishljóð og hverf inn í eigin dagdrauma, fer til baka til æsku áranna þegar jörðin [...]

Read Full Post »

Nagladekkin

Nagladekkin undir í morgun og sumardekkjunum hent.  Naglarnir gefa mér þetta “öryggi”, sem sumir kalla falskt, að ég sé örugg þegar fyrsta hálkan lætur bera á sér.  Hvort það verði í dag eða í desember, hvað veit ég.   Þetta er bara rútínan mín á hverju ári og þar sem ég vil hafa allt í röð [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »