Léttfimmtug fór á vinkonu sína vigtina í morgun og trakaði allhressilega niður fótunum þegar vinkonan sýndi núllið á tölvuskjánum, svo pírði hún saman augun og vildi helst ekki opna þau til að sjá hversu háar tölur vigtin myndi sýna. Þegar augun loksins opnuðu sýndi sig að daman hafði lést á milli mánuða og er á góðri leið.
Nú er að [...]
Archive for nóvember, 2007
Léttari á sér
Posted in Uncategorized on nóvember 30, 2007 | Leave a Comment »
Heitar hendur
Posted in Uncategorized on nóvember 29, 2007 | Leave a Comment »
Loksins laus við flensufjandann og er dálítið manísk í dag. Hendur mínar eru það heitar að ég er að hugsa um að verða heilari. Hvað er betra en heitar hendur á auma bletti? Allavega finnast mér heitar hendur sem strjúka mér þægilegar og róandi. Í raun fékkst ég við heilun á mínum yngri árum og [...]
Daður
Posted in Uncategorized on nóvember 27, 2007 | Leave a Comment »
Ég er stöðugt að reka mig á að karlmenn finnast “þéttar” konur æsandi og góðar að taka utanum. Við erum heitar og mjúkar og það er svo auðvelt að hverfa inn í mjúkt holdið sem veitir öryggi á köldum vetrarnóttum. Tengdamamma, ég er ekki að halda fram hjá syni yðar!
Nú er flensan nánast [...]
Rum og Kokos kügler
Posted in Uncategorized on nóvember 25, 2007 | Leave a Comment »
Nei, ég er ekki farin að drekka og enn síður sit ég við sendna strönd böðuð í heitum geislum sólarinnar. Ég er heima og hlusta á sönglög í útvarpinu meðan lasagnablandan mallar í pottinum áður en hún fer í ofninn. Mér á vinstri hönd er lítill nettur plastpoki með rom og kókos kúlum og mér [...]
Velmegun
Posted in Uncategorized on nóvember 23, 2007 | Leave a Comment »
Ég er að hugsa! Um hvort ég sé vanþakklát eða ekki. Það er í mér leiði og ég vildi gjarnan vera allt annarsstaðar en þar sem ég er. Já, ég held það megi kalla þetta ástand vanþakklæti, því ég hef nóg af öllu. Fínan eiginmann, vel launaða vinnu, stóra íbúð, bíl frá vinnunni, pening í banka [...]
Vetrarnætur
Posted in Uncategorized on nóvember 22, 2007 | Leave a Comment »
Skuggamyndirnar sem blasa við mér út um gluggann eru dásamlegar. Hálfkláraðar byggingar og kranar sem mynda svartar útlínur á fölbleikum himni kitla forvitnina í mér og mig langar til að sjá meira af mystíkinni sem fylgir köldum vetrarmorgnum eða nóttum eins og í raun má skilgreina þennan tíma árs hér á Íslandi.
Ég er öll að [...]
Jæja, hún er að fara
Posted in Uncategorized on nóvember 21, 2007 | Leave a Comment »
Öll að skríða saman og farin að njóta þessa að kíkja í kringum mig og sjá þessa undursamlegu fegurð sem felst í ljósaskiptunum á vetrardögum.
Næst á dagskrá er að sparka í rassgatið á mér og fara að gera eitthvað í heilsufarinu. Ég er komin á þann aldur að líkaminn er lengur að endurnýja sig.
Shit, ég [...]
Aumingaskapur Episode2
Posted in Uncategorized on nóvember 20, 2007 | Leave a Comment »
Það linnir ekki vælinu í skrokknum. Hann vælir og vælir og ekki hægt að stöðva vælið. Hef reynt að gefa honum pela með flóaðri mjólk og hunang. Skella honum yfir öxlina á mér (ef það er hægt með eigin skrokk) og strjúka á honum bakið. Rugga honum í svefn og svo smá nammi. En ekkert [...]
Endurtekið efni
Posted in Uncategorized on nóvember 19, 2007 | Leave a Comment »
Léttfimmtug er “aumingji”. Hér er talað um konu sem er orðin ansi aum vegna veikinda sem hún er að ganga í gegnum. Taugakerfið og tilfinningalíf hangir á bláþræði og það þarf lítið til að frúin brotni niður og fari að gráta. Trúi ekki að breytingarskeiðið sé að spila hér inn í með flensu og hori! [...]
Helvítis flensan
Posted in Uncategorized on nóvember 18, 2007 | Leave a Comment »
Hún er ekkert á undanhaldi þessi flensa sem er búin að hrjá mig í tíu daga. Nefið á mér skiptir um lit og er rautt að utan og litfagurt að innan og svo hrjáir mig þreyta og vottur af þunglyndi. Leiðinlegt þegar veðrið er svona fagurt og tilvalið að fara í langan göngutúr í Heiðmörkinni.
Ég [...]