Hún er ekkert á undanhaldi þessi flensa sem er búin að hrjá mig í tíu daga. Nefið á mér skiptir um lit og er rautt að utan og litfagurt að innan og svo hrjáir mig þreyta og vottur af þunglyndi. Leiðinlegt þegar veðrið er svona fagurt og tilvalið að fara í langan göngutúr í Heiðmörkinni.
Ég dunda mér við að rykþurrka og strjúka af gólfum eins og konur einar kunna að gera og bölva í hljóði því mér leiðast þessi vikulegu heimilisstörf. En mér leiðist enn meira rykið og óreiðan þannig að ég læt mig hafa leikfimina sem fylgir því að sveifla rykmottu, dusta baðmottu og teygja mig með tusku og strjúka af skápum, svona pínu höfðuð, herðar, hné og tær. Ég er ekki beint sexý þegar ég svíf þetta um íbúðina með náttbrækurnar hangandi á holdugum mjöðmunum, hárið úfið og bólgin í framan af helvítis flensunni.
Það er líka óþolandi að vera með þessa matarlyst og vilja allt annað en kíló af grænmeti á dag. Langar helst í mjúka vellandi franska súkkulaðiköku með rjóma og góðu ítölsku kaffi, gott að blanda saman tveimur matarmenningum.
Fer í Kolaportið á eftir til að kaupa mér lax og ætla að hafa ofnbakaðan lax með nýjum kartöflum og salati. Sé svo til hvort ég detti í nammið í kvöld.