Ég er stöðugt að reka mig á að karlmenn finnast “þéttar” konur æsandi og góðar að taka utanum. Við erum heitar og mjúkar og það er svo auðvelt að hverfa inn í mjúkt holdið sem veitir öryggi á köldum vetrarnóttum. Tengdamamma, ég er ekki að halda fram hjá syni yðar!
Nú er flensan nánast að baki og ég hósta ekki nema svona fimm sinnum á dag og þá eins og ruddalegur sjóari sem hristist allur til með þvílíkum hávaða og horsletti.
Ég segi líka, maður skal passa sig hnjáveikur og stirður á hálum götum Reykjavíkurborgar sérstaklega þegar maður klæðir sig í hælahá öklastígvél sem voru keypt notuð í Kolaportinum á kr. 500,-
Viva la corpus