Hef verið heima síðan í lok vinnudags 21. des. Þetta er síðbúið sumarfrí sem stendur fram til 7. jan n.k. Ég er orðin svo slök að ég veit ekki hvernig ég á að snúa mér. Fer að sofa seint og um síðir og á fætur þegar skrokkurinn neitar að liggja lengur í bælinu. Er bara [...]
Archive for desember, 2007
Í lok árs
Posted in Uncategorized on desember 31, 2007 | Leave a Comment »
Dagur 3 við tvö heima
Posted in Uncategorized on desember 29, 2007 | Leave a Comment »
Það var skrautlegt gærkveldið. Eiginmaðurinn, þessi elska var að djúsa með vinnufélögum og hringdi “blindfullur” um tíuleitið í gærkveldi og bað mig um að sækja sig við veitingahúsið Domo – djö… maður, flott veitingahús, fínn matur og minn haugadrukkinn. Tek það fram að þetta er í þriðja sinn á sjö árum sem hann er svona [...]
Dagur 2 ein heima
Posted in Uncategorized on desember 28, 2007 | Leave a Comment »
Svaf á mínu græna þar til rétt fyrir tíu í morgun. Það er svo asskoti gaman að veltast um í draumaheimum þar sem lífið er eins og maður vill hafa það. Verst samt hvað svona langar legur í rúmi fara illa með skrokkinn og hann á það til að stirðna allur upp þegar komið er [...]
Ein heima
Posted in Uncategorized on desember 27, 2007 | 1 ummæli »
Skrýting tilfinning að vera ein heima með útvarpið gargandi yfir mér. Nýkomin úr sturtu klædd í svartrósóttu blússuna sem á að fela blettina sem falla af vörum mínum þegar ég gúffa í mig matnum af tveimur diskum sem eru á heimasaumaðri bútasaums diskamottu sem ég fékk í gjöf frá ungri konu fyrir langa löngu síðan. [...]
Gleðileg jól
Posted in Uncategorized on desember 26, 2007 | Leave a Comment »
Óskajól jólabarnanna. Hvít fönn og stjörnubjartur himinn og jólunum hringt inn hér á suðvesturlandinu með eldingu og einnri algóðri þrumu. Skilaboð guðanna til okkar að láta af eldglæringum og gömlum stríðshugmyndum.
Jólin voru fín hjá mér. Aðfangadagur haldinn í snotri íbúð á fjórðu hæð í vesturbænum þar sem sex manns sátu að hátíðarborði og gæddu sér [...]
Sátt
Posted in Uncategorized on desember 23, 2007 | Leave a Comment »
Hún sat í fjörunni með tærnar djúpt grafnar í hlýjan sandinn og svipur hennar var eftirvæntingarfullur. Eldurinn kraumaði í æðum hennar og hún beið þess að svalar öldurnar umlykju líkama hennar og kældu heitar ástríðurnar. Hún var alveg ómeðvituð um þá opinberun sem átti eftir að eiga sér stað í lífi hennar fljótlega. Uppskera [...]
Minnistap v. hvíldar
Posted in Uncategorized on desember 22, 2007 | Leave a Comment »
Komin í langþráð frí og veit varla hvað ég heiti. Vitið þið það? En mér er sama, það er ágætt að muna ekki og of mikil sjálfsvitund rænir manni ærðruleysinu sem leiðir af sér eitthvað skrýtið ástand sem kallast! Fíkn, flótti, meðvirkni, bipolar - nefndu það.
Búin að sjoppa í jólamatinn en gleymdi kaffinu, get varla boðið [...]
Svefngengill
Posted in Uncategorized on desember 18, 2007 | Leave a Comment »
Nýrisin úr rekkju eftir fjórtán tíma svefn og er enn þreytt. Samt hef ég minnkað bleiku pillurnar. Ég velti fyrir mér hvort konur í gamla daga, fyrir daga uppþvottavéla, þvottavéla, straufrírra karlmannskyrtna, ryksugna og allra þeirra hjálpartæka sem á að auðvelda okkur konum lífið, hafi verið svona þreyttar eins og ég, kona á sextugsaldri með [...]
Falin kerlingarveiki
Posted in Uncategorized on desember 16, 2007 | Leave a Comment »
Ég er að drepast og er kannski dauð en vafalaust ekki því ég finn svo til. Helvítis vefjagigtin er að gera útafvið mig og er varla næ að ganga því iljarnar kveinka sér líka. Dýrðarinnar ástand þetta svona í miðjum desembermánuði þegar maður á að vera upp um alla veggi að þrífa, þvo gardínur, baka [...]
Skoðanaleysi og yfirum
Posted in Uncategorized on desember 14, 2007 | Leave a Comment »
Ég hef engar pólítískar skoðanir lengur. Trúi hvorki á stjórnmál eða kirkjulegar sannfæringar eða trúboð á hvorn veginn sem er. Fer þó í kirkju því mér finnst gaman að syngja og þegar prestar tala af tilfinningagreind um fallegan siðaboðskap og góða hegðun manna á milli þá fer ylur um mitt þreytta hjarta. Var rauð sem ung [...]