Komin í langþráð frí og veit varla hvað ég heiti. Vitið þið það? En mér er sama, það er ágætt að muna ekki og of mikil sjálfsvitund rænir manni ærðruleysinu sem leiðir af sér eitthvað skrýtið ástand sem kallast! Fíkn, flótti, meðvirkni, bipolar - nefndu það.
Búin að sjoppa í jólamatinn en gleymdi kaffinu, get varla boðið gestum upp á skyndikaffi, eða hvað? Allar jólagjafir keyptar, að ég held og vona ég að enginn fari í jólaköttinn mín vegna.
Nú tekur við sófinn næstu tvo daga, lestur góðra bóka og tvær til þrjár baðferðir á dag í Lavenderbaði. Sykur verður fjarstaddur þar til á aðfangadag, en þá verður sukkað og á jóladag líka. Svo að jólum loknum þá tekur við breyttur lífstíll og fráhald frá öllu því sem gerir mig elliæra og stirða í skapi.
Vona að Þorlákur leggist vel í ykkur. Ég borða skötuna fjarri eigin heimili og hlakka til að finna amoníaklyktina sem slær mig nokkurn veginn flata.