Óskajól jólabarnanna. Hvít fönn og stjörnubjartur himinn og jólunum hringt inn hér á suðvesturlandinu með eldingu og einnri algóðri þrumu. Skilaboð guðanna til okkar að láta af eldglæringum og gömlum stríðshugmyndum.
Jólin voru fín hjá mér. Aðfangadagur haldinn í snotri íbúð á fjórðu hæð í vesturbænum þar sem sex manns sátu að hátíðarborði og gæddu sér á eðalmat húsmóðurinni til sóma. Gjafir flæddu langt fram á gólf og börnin tvö undu sér við að lesa af pökkum og opna þá með barnslegum ákafa. Ekki var heldur laust við spennu hjá þeim fullorðnu hvað upp úr þeirra pökkum kæmi. Að loknu góðu kvöldi héldu Léttfimmtug og eiginmaður glöð heim í kotið sitt, fóru í nýju náttfötin og karlinn í nýju náttföt keisarans áður en hann hallaði sér ofan á Nasa hannaðan kodda sem á að halda honum frá hálsríg og axlaróþægindum.
Jóladagur einkenndist af taugaveiklunarástandi Léttfimmtugrar meðan hún stússaðist við að elda jólamat handa átta til fjórtán manns. Það var stöðugt verið að bæta í eða hætta við komu gesta og kunngerðist ekki talan fyrr en rúmlega sex þegar einn hluti af pari komst loks til húsa en kvenparið lá heima barnshafandi, búin á tuttugumanna veislu á aðfangadag.
Léttfimmtug var leiðinleg við manninn sinn og hvæsti á hann svona rétt í miðri sósugerð, náði sér í rauðvínsflösku og stútaði hálfri í einni slettu! Tek það fram að frúin er óvirkur alki en sósan fékk sér ærlega neðan í því og ekki laust við að fólk færi hálfkennt frá borði. Jólastressið fæðir af sér ýmis skapgerðarflóru.
Nú er fráhaldið byrjað og tekur við á eftir tuttugu til hálftímaganga, vefjagigtin lætur vafalaust í sér heyra, en hreyfing er gott ráð við gigtinni og innan þriggja mánaðan verður frúin komin með flatari maga, betra úthald og verkjaminni skrokk. Hef einnig ákveðið að minnka þau lyf sem ég hef verið að taka við gigtinni og leyndu þunglyndi og láta betra matarræði og hreyfingu ásamt jákvæðni reka á burtu slæma heilsu.
Takk fyrir jólin og ég hlakka til áramótanna og þess að njóta þess að vera í fríi fram til sjötta janúar 2008.