Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for janúar, 2008

Já! – Maður þarf víst að viðurkenna að skapið hleypur víst með mann í gönur.  Gvuð hvað ég er fegin að hafa ekki hringt í fyrirtækið og viðrað staðhæfingar mínar um að hann hefði ekki farið upp á þak.  Hann fór upp á þak og lagaði bágtið, það bara kostaði svo lítið að maður var [...]

Read Full Post »

Nornataktar

Ég var ótrúlega pirruð í gær og nötraði öll þegar ég loksins náði heim eftir annasaman og skrýtinn dag.  Það á ekki við mig þegar ég fæ ekki matinn minn á réttum tíma, á réttum diski og við réttar aðstæður.  Ömurlegt að þurfa að borða hveitikímbrauðið sitt, stóra hlunka af grænmeti og skyrdollu á milli [...]

Read Full Post »

Farsíminn hringir.  Ég tek hann upp úr töskunni en missi hann í gólfið, beygi mig niður snöggt til að ná í hann áður en símaræfillinn hringir út. Djö.. bakið þoldi ekki þessa snöggu hreyfingu og bogin í baki ríf ég í lokið og ýti á “svartakkann”.  Halló! segir konurödd hinum megin og heyri ég að hún tekur andköf, [...]

Read Full Post »

Snilligáfa

 Í langan tíma dvaldi hún í heimi hinna lifandi dauðu. Engar ástríður bærðust í líkama hennar og hugur hennar var sem eyðimörk. Einstaka sinnum birti þó til í huga hennar, í augun kom aftur glampi saklausrar æsku og trúin á lífið byrjaði að endurfæðast innra með henni. Smám saman kom hún til baka úr undirdjúpum [...]

Read Full Post »

Vöðvar!

Já, vöðvar! – þeir gera vart við sig þessa dagana og þá sérstaklega þeir sem höfuðið hvílir á og tengir það við axlirnar.  Mér er illt í öxlunum og upphandleggjum.  Alltaf sama sagan, þegar maður fer að hreyfa sig þá fer blóðið af stað og tekur í líkamsparta sem hafa legið í dvala og þegar [...]

Read Full Post »

Ljótir strákar

Það er bara gaman þegar veðrið hamast svona áfram.  Er alltaf í essinu mínu þegar ég berst gegn rokinu og hef betur.  Það reyndi að fella mig í dag rokið þegar ég þrammaði þetta ein í 104 Reykjavík.
 Mikið þótti mér sárt að horfa á Spaugstofuna í gær.  Þarna var einelti af grófustu gerð þegar vegið [...]

Read Full Post »

Speguleringar

Það er ýmislegt sem fer í gegnum höfuðið á mér þegar ég er að ganga, sumt festist annað hreinlega týnist einhversstaðar á leiðinni.  Ég var að fara í gegnum sambönd mín við fólk í gegnum tíðina og þá sérstaklega árekstrana á milli mín og þeirra (þeir hafa verið þó nokkrir)… ég er með eldfimt skap, [...]

Read Full Post »

Gosið

Ég er orðin það fullorðin að ég man þegar gaus í Vestmannaeyjum.  Það var fullt tungl og mér fannst það svo nálægt jörðinni eins og það væri að reyna að kyssa hana.  Ég var ófrísk að mínu fyrsta barni og komin átta mánuði á leið.  Ung, fávís, óreynd rauðhærð stúlka sem ekki vissi hvað framtíðin [...]

Read Full Post »

Bleika skýið

Maður er víst ekki alltaf á bleika skýinu.  Það koma dagar þegar rokið rífur í mann og maður vill ekkert frekar en að kúra undir sæng með góða bók og eitthvað heitt að drekka. 
Veit ekki hvort óróinn í borgarstjórn Reykjavíkur sé að hafa þessi áhrif á mig, en held ekki þar sem ég tek alltaf [...]

Read Full Post »

Velti fyrir mér

Hvers vegna það sé að maður fer alltaf til baka í hegðun sem veldur vanlíðan.  Hér er ég að vitna í ofát þar sem það hefur verið mitt vandamál síðustu þrjá áratugi.   Afhverju endurtek ég alltaf sama leikinn aftur og aftur þrátt fyrir að eldri reynsla eigi að duga til að ég viti hvað bíði [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »