Hvað gera konur þegar þær eru þreyttar eftir dagsvinnu, göngu og sund? Jú, þær undirbúa máltíð næsta dags svo það minnki líkurnar að falla í freistni og verða aftur að sófakartöflu. Þetta gerði Léttfimmtug í dag, þrammaði í gegnum snjóinn eins og hún gerði í gær og fyrradag. Skellti sér síðan í sund og synti [...]
Archive for janúar, 2008
Gleðin yfir göngunni
Posted in Uncategorized on janúar 17, 2008 | Leave a Comment »
Hóstakjökur
Posted in Uncategorized on janúar 15, 2008 | Leave a Comment »
Sit á fjórðu hæð í vesturbænum og horfi á glitrandi ljósin austar í bænum og nágrannabæjum. Inn úr barnaherbergi berst hóstakjökur í þriggja ára dóttursyni mínum. Hann er ekkert á því að fara að sofa og “vill bara” – en ég vil horfa á ljósið, segir sá stutti með sinni hásu rödd. Systirin er í [...]
Ups & downs, uppur og niðrur
Posted in Uncategorized on janúar 14, 2008 | Leave a Comment »
Var að horfa á fræðandi þátt gerðan af leikaranum Fry (steiktur) þar sem hann gefur sýn inn í heim fólks með geðhvörf (bipolar). Athyglisverður þáttur og kannaðist ég við margt úr honum. Elskan hún mamma var bipolar og gerði sjúkdómurinn henni lífið erfitt en hún átti samt sína skemmtilegu tíma og var æðisleg þegar hún [...]
Góð helgi
Posted in Uncategorized on janúar 13, 2008 | Leave a Comment »
Helgin er næstum að baki og aðeins eftirmiðdagurinn og kvöldið eftir til að njóta. Ég hef notið þess að vera til að öllu leyti. Ekkert sem pirrar mig. Þessir dagar koma þar sem allt er í stakasta lagi og engin löngun eða ástæða að vera argast út í eitt eða neitt.
Góður göngutúr léttir alltaf lund [...]
Bipolar ofæta í bata
Posted in Uncategorized on janúar 11, 2008 | Leave a Comment »
Spurning hvort ég sé bipolar í matarmálunum mínum? Myndi manneskja ekki vera skilgreind sem bipolar “áthvarfa” sjúklingur sem tekst á rúmlega ári að grenna sig um 30kg, gefa síðan skít í allt fráhald og fitna um 25, fara aftur í fráhald og léttast um 18kg, kolfalla í Þýskalandi í janúar á því herrans ári 2007, [...]
Skoðunin
Posted in Uncategorized on janúar 9, 2008 | Leave a Comment »
Ég get stundum verðið dálítið utan við mig. Í morgun var árleg skoðun hjá krabbklobbalækni sem er með stofu út í bæ. Skemmtilegur læknir og frábrugðinn þessum stífu í hvítu jökkunum sínum á sterílli læknastofu. Hans stofa er full af fílum í allskonar stærðum, bunkar af skýrslum fylla allar hillur og hálfrifinn stóll sem maður [...]
Í kröppum dansi
Posted in Uncategorized on janúar 8, 2008 | Leave a Comment »
Lífið er þyrnaganga án rósarblaða. Það koma þessir dagar þegar vinstri fóturinn er fyrir þeim hægri og dapurleikinn hellist yfir mann. Kuldinn, myrkrið og fjarvera jólaljósa mynda þessa ljúfsáru löngun eftir heitu sumri og svamli í hyl undir beljandi fossi – á einn slíkan fyrir norð-austan.
Mannleg samskipti geta verið snúin og stundum snúast frændur gegn [...]
Jólin búin
Posted in Uncategorized on janúar 7, 2008 | Leave a Comment »
Og bumban hjá mörgum stærri. Mér tókst á milli mánaða að létta mig um 1.1kg og er ég á góðri niðurleið, með í augnablikinu tilheyrandi hiksta (þú sem talar illa um mig, HÆTTU ÞVÍ!) – Mér finnst frábært að finna hvað mér líður vel þegar ég hef tekið út úr mínu daglega neysluplani sykur og [...]
Velti fyrir mér
Posted in Uncategorized on janúar 7, 2008 | Leave a Comment »
Afhverju við sökkvum í dapurlegar hugsanir, biturð, vonbrigði, kvíða, reiði og allar þessar tilfinningar sem búa til hnút í maga, hálsi og höfði? Hef ekki svarið, en hef verið á þessum stað æði oft á minni löngu lífsgöngu. Mér finnst samt eins og lífið sé val að mörgu leiti, allavega hvað hugsanir snertir. Val um [...]
Dagurinn dásamlegi
Posted in Uncategorized on janúar 4, 2008 | Leave a Comment »
Sumir dagar geta verið svo yndislegir. Fór í heimsókn til tveggja eldri kvenna í dag og ég veit ekkert betra en að sötra heitt kaffi og blaðra dálítið um liðna tíma og njósna dálítið um mig sem barn. Ég og seinni konan sem ég heimsótti höfum það fyrir sið að drekka úr bolla og spá [...]