Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for febrúar, 2008

Famine – hunger – HUNGUR!

Hvernig er þetta með hausinn á manni og þetta líffæri þarna fyrir neðan bringubeinið, magann, hinn neðri heila, tilfinningarnar.  Allur þessi tómleiki, þetta eilífa væl úr innyflunum um að hungursneyð sé í gangi.  Ég fæ ekki nóg æpir maginn og sendir boð upp í rökhugsun og tilfinningin fær á sig orð og orðið verður að [...]

Read Full Post »

Elska veturinn

Ég vildi ég væri orðin barn aftur og léki mér í snjónum.  Byggi til engla í hvíta fönnina og gæti rennt mér á rassinum niður bratta hlíðina.  Teikað bíla og skautað á frosnum götum þorpsins þar sem ég bjó sem barn og unglingur.  Að sjálfsögðu gæti ég alveg leikið mér í snjónum sem fullorðin kona, [...]

Read Full Post »

Horft til sólar

Ég hlakka til að komast í sólarfrí daginn eftir páska.  Spóka um og sóla mig og ná í skrokkinn á mér ærlegri hvíld.  Það hefur tekið á mig að grennast og fitna á víxl síðustu fjögur ár.  Mig langar í ærlega breytingu í líf mitt og gæti alveg hugsað mér að búa á erlendri grundu [...]

Read Full Post »

Heilsan endurheimt

Eftir kuldahroll, flökurleika og höfðuverk í gær er ég í dag í miklu betra formi.  Dálítið slöpp en hristi það af mér á eftir þegar ég er búin að sturta af mér svita gærdagsins. 
Átfíkli finnst það auðvitað bara gott að vera ekki svangur og finna hvernig kílóið hverfur af manni við einn dag í svelti [...]

Read Full Post »

Stormar lífsins

Það gustar í kringum mig og mína þessa dagana.  Svo mikill stormur að allt dautt lauf og annað rusl hverfur út í veður og vind.  Þetta eru andlegir tiltektardagar þar sem sópað er úr hornum sálarlífsins og gamlir kóngulóarvefir eru leystir upp.  Sársaukafullar aðgerðir meðan á ofsaveðrinu stendur en síðan kemur þessi innri ró, sátt [...]

Read Full Post »

Lífið er bara ágætt þrátt fyrir hausverkinn.  Ég er á fínum stað og er ánægð með hvað ég stend á stöðugum fótum.  Það eru fáir úlfar sem ná að blása mig um koll – einn reyndi slíkt í gær og sló fjölskyldumeðlim minn undir beltisstað að honum fjarstöddum.  Úlfurinn grét og grét og horið rann niður [...]

Read Full Post »

Fyndar ömmur

Ég er ákaflega reynslaus amma og fatta ekki alveg litla kolla.  Í gærkveldi var ég að lesa fyrir börnin úr einum af ljóðabókum Þórarins Eldjárns – Óðfluga – A,B,C,D las ég og sönglaði með taktfast og faglega að ég hélt, sé ég þá að sá stutti stendur á öndinni af hlátri, hann hló og hló [...]

Read Full Post »

Þegar höfuðið kvartar

Þegar klakabrynjan þiðnar af manni þá upplifir maður ýmsar tilfinningar sem maður vissi ekki að væru að trufla mann. Ég fékk alltí einu í gærkveldi samviskubit yfir því að ég hafði ekki hugsað til látinna dætra minna í nokkurn tíma. Fannst eins og að ég væri að svíkja þær með því að vera glöð og [...]

Read Full Post »

Gleðitár af himnum

Aldrei er ég meir í essinu mínu en þegar ég geng í regnúða og finn hvernig tár englanna hreinsa af mér allan andlegan skít – fyrirgefið mér hinar viðkvæmu sálir fyrir að taka svona til orða.  Það er eitthvað við hreyfingu, úða og drullugar gangstéttar sem gera mig að barni aftur.  Að fá að þramma [...]

Read Full Post »

Sett í brýrnar

Stundum set ég í brýrnar og keyri höfuðið á milli axla mér.  Fnæsi og rýk áfram þegar ég finn þörfina til að tjá manneskju upplifun mína á atburði eða setningu.  Hef allt á hornum mér og sparka til fæti.  Á þessum augnablikum er ég svöng eða tóm að innan og breytist úr siðmenntaðri manneskju í [...]

Read Full Post »

Eldri færslur »