Tyngd min hefur verid ad aukast allt fra thvi eg faeddist. Thyngdin for ad angra mig thegar eg var halfthritug. Eg hafdi oged a naktri spegilmynd minni i matunarklefum thegar eg var 55kg, eg hef oged a spegilmynd minni nuna thegar eg geng framhja speglum 85kg og se ekkert nema litid lagvaxid kjotstykki, leleg sjalfsmynd [...]
Archive for mars, 2008
Thyngdin
Posted in Uncategorized on mars 30, 2008 | 1 ummæli »
Engir islenskir tafir
Posted in Uncategorized on mars 29, 2008 | Leave a Comment »
Madur verur vist ad saetta sig vid ad thegar ekki er haegt ad tengja fartolvuna a heitu reitunum ad notast skuli vid erlent lyklabord. Thad dregur ur lysingarahrifunum ad geta ekki notad islensku stafina.
Er a lifi og er farin ad taka lit, verd freknott og likar thad nuordid ekki illa. I dag er madur threyttur [...]
Kanarikvedjur
Posted in Uncategorized on mars 27, 2008 | Leave a Comment »
Notarlegt er lifid nuna. Sol, hiti og sendnar strendur. Eg er ad skoda sjalfa mig, vanmatt og stjornleysi og hvernig eg get byggt lif mitt upp an thess ad thurfa ad hlaupa i felur med sjalfa mig.
Eg er ekki ad eta a mig gat, en eg er thvi midur komin aftur a tha skodun ad [...]
Farin í frí
Posted in Uncategorized on mars 24, 2008 | 3 ummæli »
Tvær vikur Kanarí – sukk og sólarí. Nei, ekkert sukk. Plana að vera með Guði á ferð, slaka á og treysta. Verð með yndislegu fólki, manninum mínum og tengdaforeldrum.
Kem heim heil á sálu og líkama og mun skilja allan andlegan óþverra og kvíða í Atlandshafi við strendur Afríku. Kærleikurinn mun leysa allt upp og gefa mér fulla [...]
Hvað skal segja
Posted in Uncategorized on mars 22, 2008 | 1 ummæli »
Ég er að venjast munni fullum af tönnum. Það gengur ágætlega. Þegar ég hugsa til allra þeirra möguleika sem nýjustu tækn og vísindi gefa okkur, tuttugu ár til baka og ég hefi verið með lausan góm í bæði efri og neðri, en þökk sé frumkvöðlum (þeim sem hafa hugvitið) læknavísindum og handlögnu fólki þá er ég [...]
Munnur fullur af tönnum
Posted in Uncategorized on mars 18, 2008 | 2 ummæli »
Nú er sex ára ferli lokið og mér líður eins og ég hafi verið yfirgefin. Líkami minn titrar og ég er máttlaus í hnjánum. Ekki það að ég sé að skilja eða hafi nýverið aftur orðin ástfangin, Nei! – ég er með munninn fullan af títanskrúfum og þar ofaná postulínstennur í tugatali. Hef meira að [...]
Púki, púki –
Posted in Uncategorized on mars 17, 2008 | Leave a Comment »
Ég er í ágætis skapi þrátt fyrir að maginn (fíknin) kalli á mig af ofurkrafti. Hefði ekkert á móti því að sitja á kaffihúsi með góðan latte og svona tíu karamellu kleinuhringi. Úff, þetta er ekki lítið sem lagt er á nútímafólk að halda að það þurfi á sama magni af mat að halda og [...]
Líf, dauði og endurfæðing
Posted in Uncategorized on mars 15, 2008 | 1 ummæli »
Veit ekki afhverju ég titla þessa bloggfærslu svona. Kannski afþví að ég er að horfa á Who do you think you are (hver heldur þú að þú sért) sem er þáttur á Reality TV og þessa stundina er það hin ægifagra, kynæsandi ekki of granna Nigella sem er að fara í gegnum ættarsögu sína.
Ég veit [...]
:-(
Posted in Uncategorized on mars 14, 2008 | Leave a Comment »
Þreytt, pirruð, svöng, í þráhyggju, hef allt á hornum mér. Ekki góður dagur en ég kemst í gegnum hann. Mér var ekki lofað að allir dagar yrðu frábærir.
Ég verð að passa mig á að eiga orku afgangs fyrir mig og setja mig og mitt fráhald í forgang – hitt leiðir bara til fíknar og ofáts.
Norn og spákona
Posted in Uncategorized on mars 13, 2008 | 6 ummæli »
Fékk tvær stöllur í heimsókn í gærkveldi, eina núverandi og eina fyrrverandi samstarfskonur! Önnur ljóshærð, hávaxin, snyrtileg og smá fjarlægur fiskur (stjörnumerki), hin hávaxin, Rubens sexy steingeitar beib og ég þarna í miðjunni, lágvaxin, Rubens, snyrtileg, fjarlæg og nálæg í hlutverki bogamanns spákonunnar. Ég býð ekki oft konum heim (og enn sjaldnar körlum) þar sem [...]