Nú er sex ára ferli lokið og mér líður eins og ég hafi verið yfirgefin. Líkami minn titrar og ég er máttlaus í hnjánum. Ekki það að ég sé að skilja eða hafi nýverið aftur orðin ástfangin, Nei! – ég er með munninn fullan af títanskrúfum og þar ofaná postulínstennur í tugatali. Hef meira að segja jaxla sem voru rifnir úr mér sem barni af héraðslækninum heima vestur í Ólafsvík (löngu flutt þaðan). Það er ekki pláss fyrir tunguna í munninum á mér og ég er smá ess-mælt. Úff, hvað ég er þreytt þegar að ferðalokum er komið og heimsóknir mínar til fyndnasta tannlæknis landsins verða ekki svona margar og ég fæ ekki að hlægja svona oft að bröndurunum hans:
Maður kom inn í byggingavöruverslun. Ég ætla að fá eitt klósett sagði hann við afgreiðslumanninn. Við seljum ekki sett bara stakar klær sagði afgreiðslumaðurinn. Nú, hváði maðurinn! af hverskonar fuglum eru þessar klær? Þær eru af Salerni sagði afgreiðslumaðurinn ósköp sakleysislega – þetta er smá heyrnarsýnishorn af því sem ég heyri í stólnum, heppin að aldrei hefur ratað skrúfa eða tönn ofan í hálsinn á mér í mestu hláturrokunum.
Borðaði fyrstu máltíðina fulltennt en líka gómsæt að venju og þurfti ekki að passa uppá að helvítis plastbrúin myndi klofna eða brotna eins og hún er búin að gera sl. ár. Prufaði meira segja að bíta manninn minn og náði ég góðu biti
…. herlegheitin kosta mig tvær milljónir rúmar, eitt stykki Ford Fiesta en stellið á að duga þar til ég dey og kemur til með að vera óbrennt og óskaðað þegar ég fer í líkbrennsluna.
Morgun síðasti vinnudagur þar til 10. apríl, fer á þriðjudag eftir páska til bíbíeyja (kanarí) og verð í sól og sumaryl í tvær vikur. Ég ætla að skilja hömlulausu ofætuna heima og koma 3kg léttari til baka. Lofa, tíu fingur til Guðs, ekkert sukk. Það eina ljóta sem ég ætla að gera er að skella mér á nektarströndina og sýna nýju brjóstin og glenna upp munninn svo allir sjái nýja postulínið en því miður verð ég víst að nota límband til að halda kviðnum flötum, en það tekur enginn eftir því og klemmunum sem halda uppi linum rassinum – ég verð bara flott þarna á milli ungra kvenna sem ekki hafa látið lappa upp á sig, greyin þær eiga þetta allt eftir.
Jæja, býð ykkur góðrar nætur og ekkert sukk.
elskan mín, þú tekur meðalaldurinn á nektarströndinni niður í nánast ekki neitt, þetta er allt eldgamalt og krumpað … ég ætla að stela brandaranum frá tannlækninum og setja hann á mitt blogg takk … en að öllu gamni slepptu þá þykir mér vænt um þig og er ríkari fyrir að hafa kynnst þér
lipstick all over you
ella s.
Jæja ljúfust, innilega til lukku með nýja tanngarðinn, og sjá- hvað er betri ástæða til að brosa allan helv. hringinn en nýtt postulín! Njóttu þeirra..
Og njóttu einnig Kanarí.. langþráð slökun!
Takk fyrir spádóminn um daginn – ég bíð spennt =)
Luv, Dísin
Lots of of people blog about this issue but you wrote down some true words!!