Ég er að venjast munni fullum af tönnum. Það gengur ágætlega. Þegar ég hugsa til allra þeirra möguleika sem nýjustu tækn og vísindi gefa okkur, tuttugu ár til baka og ég hefi verið með lausan góm í bæði efri og neðri, en þökk sé frumkvöðlum (þeim sem hafa hugvitið) læknavísindum og handlögnu fólki þá er ég pikkföst í efri og þeim neðri. Þetta hefur þau áhrif að ég get tuggið fæðuna betur, melt hana, jórtrað (upp aftur) og skilað af mér út í náttúruna (colon cleaning) án þess að þurfa að detoxast í Póllandi með slöngu upp ristilinn – heppin! Heppnin felst líka í því að hafa nóg að bíta og brenna, aukasjóð í banka sem borgar herlegheitin, fína fjölskyldu sem kann að rífast á ítalskan máta og fúlast svo úti í horni þar til kærleikurinn rekur okkar saman aftur. Er að eignast fína vini sem hjálpa mér til þroska frá hömlulausri sjálfsvorkun og gæðamaka sem fer í endurvinnsluna aðra hvora viku.
Páskarnir byrjuðu hjá mér með eggjaáti á skírdag án þess að samviskubitið léti á sér kræla, nema hvað að ég fer ekki á vigtina eftir slíkar máltíðatökur (segir það ekki eitthvað).
Þrír dagar og sólin tekur við ásamt sendum strönum og ég vona stjörnubjörtum himni.
Góða ferð í sólina mín kæra og hafðu það súper gott!