Þá veit ég það. Ég á aldrei eftir að losna úr viðjum fíkna og er skv. nýjustu rannsókn eða ummælum Hjartar lækni hjáveitumagaminnkunar sérfræðingi og verða grönn eða hafa stjórn á matarílöngun minni eða þyngd, nema ég fari í aðgerð og skeri í burtu tenginguna við enzímfrumur eða hvað svo sem það heitir. Ég er dæmd til að lifa sem matarfíkill þar sem eftir er af minni ævi og á vafalaust aldrei eftir að losna úr þeirri prísund. Nú er bara að hafa sig við og þyngjast um 30kg svo ég komist í aðgerðina og losni þannig við fíknina, ég er of létt til að það sé hægt núna en of þung skv. BMI stöðlum til að geta talist í heilbrigðum skrokki! Hvað á ég að gera? – fara í enn eina megrunina, léttast um 30kg og þyngjast svo um 35 og fara síðan sama hring og þyngjast um sama plús 5 í viðbót þar til ég er komin á þann stað að geta talist kandidat í hjáveituaðgerð! Bölvaðans andskoti, þessi sultarhormon. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því að ég væri enn á steinaldarstigi og misskildi að ég þyrfti að borða svona mikið á sólarströnd til að eiga forða fyrir hið kalda íslenska sumar og ekki talandi um veturinn. Já, ég er hömlulaus steinaldarkona sem hef ekki einu sinni þann styrk að geta haldið mér frá matvælum sem eru seld dýrum dómum í Bónus og öðrum verslunum fyllt af allskonar efnum sem vekja fíkn… Andskotinn hafi það, nú gefst ég upp og fer bara að vigta og mæla aftur. Skelli mér í nunnubúninginn og dreg upp svipuna, písla mig áfram þar til sultarhormóninn þolir mig ekki lengur og gufar upp. Þetta er nú meira ljóta ástandið.
Annars, ég er vel máluð í dag. Buxnastrengurinn herðir aðeins að mjúkum maganum og dregur fram grannt mittið. Mjaðmirnar ávalar og afturendi minn föngulegur og stór sem laðar að sér gráðugt karlkynið. Ég er gyðja frjóseminnar í útrýmingarhættu, uppþornuð og nánast orðin að grárri múmmíu, mín mun verða minnst sem konunnar sem fitnaði um 5kg á hverju ári frá því hún var smábarn og sem konunnar sem skóf af sér holdið og kynþokkann með svelti og eilífum átökum við sularólina. Ég er meinlætakona sem dett í það reglulega.
Amen
Þú ert snillingur! Yndislega skemmtileg og góð færsla. Og hvað ég skil þig vel.