Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for maí, 2008

Hún hristist jörðin

Ég er þakklát fyrir að hafa ekki verið stödd á Suðurlandinu í dag, nóg var mér brugðið er ég gekk út úr Laugardalslauginn og einhver fór að baula úr iðrum jarðar og hrista laugina aðeins til.  Jarðskjálfti hugsaði ég! Æi, nei.. ekki það, örugglega einhver jafnvægistruflun í hausnum á mér.  Síðan er ég settist inn [...]

Read Full Post »

Edrúmennska

Í dag hef ég verið edrú í 29 ár frá áfengi.  Mörg ár í misjöfnum andlegum og tilfinningalegum bata.  Á þessum árum hef ég oft þurft að bíða og iðka þolinmæði, vitandi að einhverntímann myndu góðir hlutir gerast í lífi mínu.  Þetta hefur ræst í hænuskrefum (hafið þið samt séð hvað þær eru fljótar að [...]

Read Full Post »

Lífsins ganga

Ég hef ekki ritað margt hér síðustu viku enda ekki dvalið löngum stundum við tölvuna.  Líf mitt er í nokkuð regluföstum takti.  Verð þó að segja að það er skrýtin tilfinning að ekki bíði manns vinna að lokinni helgi og kannski ekki á næstu mánuðum heldur, svo ætli það verði ekki bara langskólaganga á efri [...]

Read Full Post »

Ójá gæskan, svona er nú það sagði gamla kona, strauk á sér lærin og réði fram í gráðinn – Fyrirgefið, en ég held að ég sé að gleyma öllum gömlu málstækjunum, enda nota ég bara nútíma tæki s.s. gemsa til að geyma símanúmer, contacts til að geyma netföng vina og svo slæ ég upp í [...]

Read Full Post »

Forresta Gumpa

Nú er ég komin í gang og geng eins og Forrest Gump.  Það er bara að bíða eftir því að ég fari að hlaupa og hlaupa.  En öllu gamni sleppt, þá geng ég rúmar tvær klukkustundir á dag, nota ekki bílinn og reyni að fara allra ferða minna sem rúma klukkutíma gang hvora leið gangandi.  [...]

Read Full Post »

Maður lítur yfir farinn veg og skoðar ferð sína í gegnum lífið.  Sumar minningar eru ægisárar litaðar skömm og vanmætti.  Ég á slíkar minningar um sjálfa mig.  Ég sem vanrækjanda og fársjúkan alkahólista sem ekki hafði tök á því að snúa lífi sínu í þá átt að vernda afkvæmi sitt, huga að því eða næra.  [...]

Read Full Post »

Þeir sem þekkja til styrleika piri piri kryddsins geta ímyndað sér hvað það sé að vera í sjóðheitum pirringi með verkjum í gegnum allan skrokkinn.  Vakna pirruð, fara í litun og plokk pirruð.  Elda morgunmatinn sinn pirruð, fara í Bónus pirruð, skila fyrirtækjabílnum pirruð, fara á AA fund pirruð, á kaffihús pirruð og síðan í [...]

Read Full Post »

Þegar ég var barn heyrði ég sögu um lengd lífs hvers manns.  Rétt áður en maður skýst úr skauti móður sinnar til hins jarðneska lífs þá kveikir almættið eða sá verndarengill sem fylgir okkur á kerti.  Loginn er missterkur á mismunandi æviskeiðum.  Verndarengilinn er þarna til þess að sjá um að ekki slokkni á loganum, hann [...]

Read Full Post »

Það hrynur af mér gamla lífið, skrítið! Í gær skipti ég um símanúmer og hluti af mér hætti að vera til þ.e. simanúmerið sem margir hafa þekkt mig undir sl. 5 ár.  Ég hélt smá kveðjuathöfn fyrir utan höfðuðstöðvar Símans þegar ég lét tilfinninguna um að nú myndu margir hætta að muna eftir mér (ég er [...]

Read Full Post »