Ég hef ekki ritað margt hér síðustu viku enda ekki dvalið löngum stundum við tölvuna. Líf mitt er í nokkuð regluföstum takti. Verð þó að segja að það er skrýtin tilfinning að ekki bíði manns vinna að lokinni helgi og kannski ekki á næstu mánuðum heldur, svo ætli það verði ekki bara langskólaganga á efri árum! Jú, held það svei mér þá.
Ég hef innréttað daga mína þannig að ég geng á fundi í hádeginu og heim aftur, þegar sér til sólar þá stoppa ég á heimleiðinni og kem við í sundlaugunum. Er bara þokkalega útitekin og hraustleg að sjá, sem er gott því það er óþarfi að heimurinn sjái utan á mér vefjargigtarskrattann eða stirðleikann sem honum fylgir áður en ég hef náð að liðka skrokkinn til. Mér líður hvergi betur en á göngu með hádegisnesti í bakpokanum.
Ég er á góðu róli matarlega séð og hægt og rólega fer vigtin niður á við. Ég iðka þolinmæði og reyni að hlaupa ekki framúr mér.
Gott að þú ert á góðu róli, Gangi þér vel í baráttunni.
Tengdó.
Frábært hjá þér að ganga og synda, þetta er það sem ég er á “leiðinni” að gera! Gangi þér vel.
Kv.
Elín.