Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for júní, 2008

Nóg að gera

Svo einkennilega sem það hljómar þá er nóg að gera hjá mér þó svo ég sé ekki að vinna.  Hef nóg að stússast í kringum eigin rass og þeirra sem eru nákomnir mér.  Mér líður vel í eigin skinni en vildi þó gjarnan losna við vefjagigtarskrattann sem er að gera mér lífið leitt með tilheyrandi [...]

Read Full Post »

Komin heim

Hvað annað en að sitja ein að síðbúnum morgunverði sem samanstendur af hafragraut og rúsínum ásamt slettu af mjólk.  Eitthvað annað en það sem rataði inn í munn minn á hinu stórkostlega ferðalagi til Englands nánar tiltekið til Winchester.
Winchester var fyrsta höfuðborg Englands á miðöldum og þar sátu riddararnir við Hringborðið.  Veðrið lék við okkur [...]

Read Full Post »

Farfugl

Á morgun held ég á vit ævintýra.  Ætla að skella mér til Englands, nánar tiltekið til  Winchester að skoða Jane Austin umhverfi og borg Riddara Hringborðsins.  Í leiðinni kíki ég við á AA ráðstefnu þar sem ég ætla að drekka í mig reynslu, styrk og vonir annarra sem hafa fetað bataleiðina.  Við verðum fimm fræknar á [...]

Read Full Post »

Dásamlegir dagar

Ég svíf um á bleiku skýi.  Sumarið gerir mig drukkna og ég megna ekki að vera neikvæð.  Það er dásamlegt þegar maður nær þeirri tækni að vera bara í núinu.  Það er ekki horft til baka og það er ekki horft til framtíðar.  Eitt skref í einu ber mig áfram að áfangastað og ég sest [...]

Read Full Post »

Ég hugsa!

Þess vegna er ég til, sagði einhver heimspekingur einhvertímann fyrir allt langa löngu síðan.  Man ekki nafnið enda hugsunin stundum göttótt eins og stórt sigti.  En ég hugsa og leyfi þeim “hugsununum” að flæða í gegnum heilann (þar sem mér finnst hugsunin verða staðsett) og umbreytast í tilfinningar sem heltaka líkamann og framkalla allskonar næmni [...]

Read Full Post »

Það er gott að vera til þessa dagana.  Ég er þokkalega æðrulaus og ekkert að velta mér upp úr því hvað er í gangi í þjóðfélaginu.  Eins og ein galin kerling sagði: Ég er bara í fréttabanni, horfi ekki á né les fréttir.  Sumsagt það geri ég að stærstum hluta líka enda ræð ég engu [...]

Read Full Post »

Yoga

Ég er að skoða með mér hvort ég eigi ekki að fara að stunda jóga til að ná áratugalöngu stressi úr líkamanum, en ég veit ekki hvar eða hvenær á að byrja.  Spurning um Rope yoga kannski í haust þegar sól fer lækkandi og þörfin fyrir að vera á göngu allan daginn er ekki mikil.  [...]

Read Full Post »