Ég er að skoða með mér hvort ég eigi ekki að fara að stunda jóga til að ná áratugalöngu stressi úr líkamanum, en ég veit ekki hvar eða hvenær á að byrja. Spurning um Rope yoga kannski í haust þegar sól fer lækkandi og þörfin fyrir að vera á göngu allan daginn er ekki mikil. Ég geng í dag ca. 2 klst og það er eitt sem pirrar mig, ég léttist ekki! En það sannast að það er það sem maður borðar sem fitar eða léttir. Ég lifi þó nokkuð heilbrigðu lífi líkamlega, finnst aðeins skorta upp á að ég hugsi vel um mig á andlega sviðinu, en það kemur. Mér þykir líka leitt að ég sé alltaf að huga að kílóunum, en það er samt engin furða þar sem ég er haldin útlitsþráhyggju í bland við matarþrjáhyggju. Annars ætti ég ekki að vera að kvarta, fyrir utan vefjagigtina þá er ég ágæt og ekki spillir að veðrið spilar með í daglegri útivist minni.