Útitekin með brúnan lit og freknur plús þrjú kíló á skrokki er afrakstur sautján daga fríi á hjara Norðurlands. Ótrúlega gott frí að öllu leiti og ég naut mín í botn eins og ég hafi aldrei litið íslenska náttúru fyrr. Veðrið var einstakt eins og allir landsmenn vita og ekki var dagurinn í dag síðri [...]
Archive for júlí, 2008
Komin heim
Posted in Uncategorized on júlí 30, 2008 | Leave a Comment »
Fjör í sveitinni
Posted in Uncategorized on júlí 24, 2008 | Leave a Comment »
Afleggjarnir mínir eru hjá mér í sveitinni. Voða fjör og mikið hlegið. Sullað í slöngunni og steinar vökvaðir, þeir breyta svo skemmtilega um lit og miklu skemmtilegra að bleyta þá en grasið. Í morgun var farið í fjöruferð og í leiðinni einn hrossagaukur jarðaður í skókassa með tilheyrandi bænarauli, söng og leiðið síðan skreitt í [...]
Sældarlíf
Posted in Uncategorized on júlí 21, 2008 | Leave a Comment »
Ég lifi sældar- og sveitalífi. Komin aftur til barnæskuáranna þegar maður naut þess að vera til og hafði ekki áhyggjur af einu eða neinu. Þetta er svo æðislegt líf þegar maður er í takti við náttúruklukkuna og lætur tímann lönd og leið. Það er veðrið, sólin og rigningin sem ræður för. Rigningin sér til þess [...]
Sveitalífið
Posted in Uncategorized on júlí 18, 2008 | 1 ummæli »
Hvergi er dásamlegra að vera en við hafið bláa og heiðarnar. Þótt veðrið sé ekki sólarmikið og nesið oft hulið þoku, þá er yndislegt að vera í nátturunni, hlusta á þögnina sem er öðruhvoru rofin af fuglasöng, sjávarnið og ýlfri í vindinum. Maður kemst einhvern veginn nær innsta kjarna sjálfs síns þegar lífsgæðakapphlaupið virðist vera [...]
Enn eltir mig þokan
Posted in Uncategorized on júlí 15, 2008 | Leave a Comment »
Þokan er að verða að aðalefni bloggs míns, en ég ræð ekki við för náttúrunnar. Seljurnar fyrir utan gluggann eru það eina sem ég sé bærast í vindinum því fjöllin og túnin eru hulin þoku. Það eina sem hægt er að gera er að hella sér í bókalestur daglangt og eru einni þegar lokið, Postulín [...]
Þokan á nesinu
Posted in Uncategorized on júlí 14, 2008 | Leave a Comment »
Sit hér á náttfötunum og horfi á þokuna leggja undir sig Nesið. Það er kalt í húsinu enda kyndingin með rafmagni og orkunni er ekki sóað. Minnir mig nokkuð á bernskudaga mína. Ég er löt og hef varla hreyft mig úr húsi til göngu, hef látið bílferðir duga hingaðtil. Lónið í Mývatnssveit heimsótt og legið í [...]
Dottið í þokunni
Posted in Uncategorized on júlí 7, 2008 | Leave a Comment »
Gangan í gær var farin helmingi hraðar en þegar fyrst var farið á Bunguna. Þokan faðmaði mann þegar ofar dró og sólgleraugun voru hulin svitadropum sem vætluðu undan svartri derhúfunni. Við vorum ein upp við flaggið og ákváðum að ganga aðeins ofar og að næstu bungu, en þokan byrgði okkur sýn og var haldið niður [...]
Er að úbúa nesti
Posted in Uncategorized on júlí 6, 2008 | 1 ummæli »
Æðislegt veðrið og sunnudagur í bónus. Ætla upp Úlfarsfellið með nesti og gamla skó. Þramma þessa 271 metra yfir sjávarmáli og blása ekki úr nös eins og ég gerði fyrstu skiptin sem ég var að prufa þessa bungu sem skilur að Mosfellsbæ og Reykjavík. Þrátt fyrir að fjallið sé á milli byggðarkjarnanna þá er maður [...]