Lífið er dásamlegt. Hvað er annað hægt í svona veðri, sem leikur við mann á hverjum degi. Átti yndislegan helgi á Snæfellsnesinu með fjölskyldu minni og vinum. Dásamleg grillmáltíð á palli þar sem slegið var á létta strengi. Snæfellsnesjökull skartaði sínu fegursta og gola strauk létt um kinn. Á laugardeginum fórum við stelpan mín, barnabörnin, vinur stelpunnar og hans strákar upp að jökulrótum og gekk ég dálítinn spöl nær jöklinum, yndislegt. Að lokinni grillveislu var strigi heftur á bílskúrsvegg og keppust sumir við að mála hina fegurst tóna úr náttúrunni og hanga nú nokkrar myndir til sýnis þeim sem framhjá eiga leið. Á heimleið í bæinn aftur var keyrður suðurrúntur og stoppað í Djúpalóni, nokkrir seiðmagnaðir steinar rötuðu í vasa og svo var buslað með táslum smá í sjó. Ég gæti ekki verið hamingjusamari en ég er þessa dagana.
Til þess að kóróna allt saman þá hafa fokið 1.5kg síðan á mánudag svo allt stefnir í rétta átt.
Til hamingju með 1500 gr í mínus