Jæja, ég skráði mig í kvöldnám í gær og byrjaði fyrsta tímann strax í gær. Þetta verða eingöngu 8 einingar sem ég tek fyrir jól. Ákvað að láta gamlan draum rætast og hafa mig í það að fara í módelteikningu í FB. Ég sem mála reglulega með stórum strokum ætla að læra að teikna eftir hnitum. Munda blýantinn með annað augað lokað og finna réttu hvörfin á milli punktalína. Svo fattaðist að ég átti einn áfanga eftir í íslensku, stafsetninguna… þetta er það sem ég geri þá næstu mánuði.
Ég er orðin dugleg að vera í selskap sjálfrar mín. Hlusta á eigin hugsanir og reyna að stöðva þær og fljóta bara með í núinu. Kannski ég uppljómist í þessu lífi, hver veit.