Vitið þið muninn á snemmvakningi og uppvakningi? Verðlaun fyrir þann sem veit svarið
Ég veit það, en ætla að svo stöddu ekki að ljóstra upp um mína þekkingu á íslensku gamalmáli (ekki gamanmál, ef einhver skyldi villast á meiningunni).
Ég er svo vel að mér í inntaksföllum íslenskrar tungu, hreint út sagt ótrúlegt að það hafi ekki uppfattast fyrr. Mig grunar að hér slæðist inn lærdómur sá er goggaðist að mér í hjá Færeyskri fjölskyldu sem brottflaut frá sínum heimaojum í lok fimmta áratugar síðust aldar. Já, þá var tíðarhvarfið annað en það er í dag, nú heitir þetta víst tíðarhvörf á góðri íslensku ástandið sem ég er að ganga í gegnum núna. Konur hér í gleymskudaga fóru í hvarf á bak við stein þegar ástandið bankaði á dyrnar. Það var ekki gott ástandið þá, fullt af Camelreyktum könum og konur með víðar silkibrækur lausgirtar blaðrandi, jú vont mí? Ég skildi ekki afhverju konum fannt lagið vont, hélt að sjálfsögðu að þær voru að syngja þriðja tóninn í tónskalanum, en hann lafði oft á tíðum, tóninn á ég við en ekki “hann” á Camelreyktum könunum.
Ég held að ástandið Snemmvakngur sé frekar alvarlegt ástand miðað við hvað hér festist á netblaði. Held ég hressi mig við á skyndikaffi með dashi af fjörmjólk áður en ég held út í daginn.
Grautur dagsins hefur verið etinn og stefnt er á að halda máltíðum innan skynsamlegra marka og uppþembast ekki.