Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for september, 2008

Hávaðarok

Það ekki bara gustar, heldur er hávaðarok í íslenskum fjármálaheimi.  Maður spyr sig hver útkoman verði þegar þrengir að og ekkert fjármagn að fá erlendis frá!!??  – Auðvitað hefur maður einhverja skoðun og það er ekki laust við að maður óttist að geta ekki lengur gert allt það sem maður hefur verið að gera undanfarin [...]

Read Full Post »

Hætt

að nota Oetkers búðinsduft.  Nú er það bara fjörmjólkin og kakóduftið + ódýrt sætuefni úr Bónus. 
Ég er hröð í dag, hröð vegna þess að ég tók ákvörðun um hlut sem búið er að ýta á mig í 10 ár að gera.  Nú kemur bara í ljós á næstu vikum hver áhrifin verða.  [...]

Read Full Post »

Vikulok

Ég rotaðist eftir skóla í dag.  Ég sem sef eiginlega aldrei að degi til eða halla mér.  Hef notað þvílíka orku í að lesa stærðfræði enda stefni að 9 í því fagi.  Svo er löng kvöld þegar ég er að teikna á kvöldin og tekur sú vinna í skrokkinn.
Ég DDVast þetta skv. vigtinni og réttum [...]

Read Full Post »

Léttari

1 kíló niður, heildin 5kg niður.  Fráhald í fínu lagi með tilheyrandi þunglyndistöktum og árapúkadansi.  Ég held ótrauð áfram að koma líkamanum í rétta þyngd, en fyrst og fremst að ná andlegu jafnvægi og tilfinningalegum bata frá átröskun og hömlulausu ofáti.
Vigtað og mælt fer hver biti ofan í dömuna.
Hann tók skref til baka nakti strákurinn [...]

Read Full Post »

Þrátt fyrir einlæga ósk um að láta vigtina vera og láta aðeins vigta mig 1x í mánuði hefur þráhyggjan náð yfirhöndinni.  Sú gamla var dregin fram úr skápnum og still á slétt gólfið.  Ég hef ekki hugmynd um þyngdartapið því hún (Vigtorían) er ákaflega hlaupaglöð og ekkert á því að staldra við og sýna sömu [...]

Read Full Post »

Baráttan við púkann

Stærðfræðineminn utangátta frú Léttfimmtug nuddaði afturbretti á jepplingi á bílastæði Þjóðarbókhlöðunnar rétt fyrir klukkan eitt í dag.  Þessi umræddi atburður átti sér stað þegar frúin var á leiðinni að hitta ungan stærfræðinema (tek það fram að frúin er engan vegin Mrs. Robinson) sem ætlar að kenna henni stærðfræðireglurnar.  Léttfimmtug leit snöggt í báðar áttir til að [...]

Read Full Post »

Pjúff

Ég er ein þeirra lánsömu að búa á þeim hluta jarðarinnar þar sem nóg er af öllu.  Ég á meira en þrjá hluti, sem skilur á milli mín og austurlenskra munka sem borða bara eina máltíð á dag, eiga bara sinn kufl, betliskál og staf.  Þeir byggja líf sitt á andlegum ríkdómi (innri friði, vona [...]

Read Full Post »

Mér varð að ósk minni

Í gær stóð ungur maður alskeggjaður og allsber á stalli fyrir framan mig og samnemendur mínar.  Fögur sjón og sú gamla glotti út í annað og í algerum frændskap við eldri menn með gráa fiðringinn.  Verð þó að segja að að það leið ekki löng stund áður en hann var að samskonar uppstillingu og epli [...]

Read Full Post »

Rafmagnað höfuðfat

Hárin standa út í loftið á mér og vonleysið er djúpt grafið í augnráði mínu þegar ég halla mér yfir dæmi í stærðfræðinni.  Svigar, brot, margföldun, plúsar og mínusar ásamt deilingu í endalausri röð rugla mig í ríminu.  Mig langar til að hlaupa í burtu og grafa hausinn ofan í blautan sandinn og dilla eingöngu [...]

Read Full Post »

Úps – tímatafla

Ég fæ nett panik kast þegar ég lít á tímatöflu mína fram að áramótum.  Einhvernveginn virðist maður setja það meira fyrir sig að verja löngum stundum í skóla heldur en að vinna eins og vélmenni 9 tíma á dag í útseldri tímavinnu til fyrirtækja.  Svei mér þá ef ég þarf ekki að kaupa mér ráðgjöf [...]

Read Full Post »