Ég fæ nett panik kast þegar ég lít á tímatöflu mína fram að áramótum. Einhvernveginn virðist maður setja það meira fyrir sig að verja löngum stundum í skóla heldur en að vinna eins og vélmenni 9 tíma á dag í útseldri tímavinnu til fyrirtækja. Svei mér þá ef ég þarf ekki að kaupa mér ráðgjöf um það hvernig ég get helst varið tíma mínum átakalaust á nokkrum vígstöðvum. Það sem skelfir mig þó einna mest er eðlislæg leti mín og frestunarárátta. Ég er lotumanneskja sem bíð fram á síðustu stundu með að klára verkefni, fæ í kjölfarið kvíðakast og hringsnýst í kringum mig föst í hraða eigin hjartsláttar. Þetta ástand býður að sjálfsögðu upp á lúgufylli af bleikum pillum (hei, hei – bið, beið, bíða. Býður, bauð, bjóða… nú er stafsetningin aðeins að trufla mig, ég kem 2x fram með bíður, 1x m. einföldu og 1x með tvöföldu = í gamla fékk ég mér alltaf tvöfaldan og nota núna gleraugu fyrir tvísýna (sjón, og því skal sýni skrifa með tvöföldu)… afsakið útúrdúrinn. Svona til áréttingar þá tek ég ekki inn bleikar pillur, mínar eru hvítar og notast við háþrýstingi, lötum skjaldkirtli og vefjargigtarskratta. Þetta með að fá sér eina bleika eða einn tvöfaldann er tragedísk háðung í eigin garð, svona til að gera lítið úr eðlilegum ótta sem fylgir manni þegar maður fer út á nýja braut. Ég er að sjálfsögðu drulluhrædd við að standa mig ekki og sitja uppi með 3.5 í meðaleinkun, sem er svartsýni því ég hef yfirleitt verið með mikið hærri meðaleinkun. Ég veit samt ekki hvernig ellliglöpin haga sér núna.
Með tilliti til alls ofanritaðs þá ætlar Léttfimmtug að taka sig saman líkamlega og bæta við 25 einingum í líkamlegum bata frá huggunaráti, kvíðaáti, líkamlegrar leti og borða rétt og hreyfa sig rétt. Þetta verður gert skv. stundarskrá (ekki stunaskrá) einn dag í einu með hjálp ÆM.
Guð blessi mig og ykkur á þessum dásamlega degi.
Þú ert ofurkona.
Kv.
Elín (Herbalife er frelsið)