að nota Oetkers búðinsduft. Nú er það bara fjörmjólkin og kakóduftið + ódýrt sætuefni úr Bónus.
Ég er hröð í dag, hröð vegna þess að ég tók ákvörðun um hlut sem búið er að ýta á mig í 10 ár að gera. Nú kemur bara í ljós á næstu vikum hver áhrifin verða. En allavega í þessum hraða fljúga ritgerðirnar úr fingrum mér og ég hleyp á ofurhraða með hliðartösku og bakpoka niður Laugaveginn, upp tröppurnar í Gula Húsinu, áfram út Tjarnargötuna inn Geysi þar sem Grænt Te er drukkið af ofurhraða og svo aftur heim í kakódrusluna, 300 grömmin af grænmeti ásamt 120 grömmum af próteini og síðan haldið áfram við ritgerðarsmíð. Svo ætla ég að verða hugrökk og kanna hvort stærðfræðihluti heila míns hafi ekki vaknað af Þyrnirósarsvefni og reikna þáttun liða í brotum. Víííííííí……!!!!!
Verð líka að deila með ykkur þessu: Nakti strákurinn varð lifandi á brúna pappírnum mínum. Er búin að spreyja hann svo hann verður hjá mér að eilífu, dökkhærður, ungur og sléttur með dulúðugan svip í augunum. Minn heima er þó bestur þar sem hann situr við tölvuna með risastór heyrnatól og heyrir ekki rausið í mér.
Gott hjá þér að segja Dr. Otekers upp, hann sest bara utan á mann og margt annað betra í boði til að gæða sér á, mig langar t.d. alveg rosalega að fá mér ísvél
Gangi þér vel með þetta allt saman mín kæra