Það er ekki bara að það sé hrun á verðbréfamörkuðum heims sem hrella mann beint ofan í skítuga skóna. Vigtin hrynur á breyttu matarplani (sem er hinn líkamlegi bati), hömlulausar áthugsanir er fjarstaddar (tilfinningalegur bati) og ég er öll jafnari í líðan hugarfars- og andlega (andlegur bati), semsagt þríþættur bati einn dag í einu. Svo spilar líka inn stóra ákvörðunin sem ég tók fyrir 5 dögum síðan, hún hefur breytt miklu og tekið í burtu kvíða, ótta og hræðslu um það sem koma skal, sætti við það sem er að baki og hæfni til að vera meira í núinu en ég hef verið áður. Ég ætla ekki að harma að hafa ekki tekið þessa ákvörðun fyrr, sú reynsla sem ég hef safnað í pokahornið er ekki fyrir bí, hún nýtist mér í þeim skrefum sem ég geng úr nútíð inn í framtíð.