Já, ég er farin á taugum. Er með allt opið þ.e. útvarpið, sjónvarpið, visir.is, mbl.is, eyjan.is og reyni hvað ég get að spá í það sem koma skal, en bollinn opnast ekki fyrir mér og mér er fyrirmunað að sjá inn í næstu framtíð. Heimabankinn vill ekki opnast svo ég geti tæmt eina bók og skipt út fyrir aðra, Geir vill ekki segja hvað ákvarðanir ríkisstjórnin ætlar að taka og ég kem allstaðar að lokuðum dyrum. Það eina sem ég get gert er að argast út í kallinn sem sendir mér í tölupósti hænu í óðadansi, það er ég í óðadansi og fíkilinn á fullu inn í mér. Ég tæti í gúrkuna og tómatinn en grænmetið getur ekki róað æsinginn, 2 hrökkbrauðsneiðar m. DDV rækjusalati ásamt brauðræmu upp á 5 grömm slá ekki á hinn órólega huga. Ég gríp á það ráð að hita mér kakóbolla úr 200gr af fjörmjólk og hendi útí 3 candrell pillum, hann róar ekkert frekar en hitt matarkynið. Það bíður mín appelsína á eftir, svona klukkan fjögur, þegar Geir Haarde ætlar að tala til þjóðarinna. Ég ætla að borða hana í bílnum og ég er viss um að mér svelgist á, en það er betra heldur en að blóta upp úr öllu valdi þegar vondu fréttirnar verða sagðar. Ég er matarfíkill sem vill fá Stóra Cadburys súkkulaðistykkið upp á 500 grömm sem ég treð í mig á 5 mínútum, ég fæ þá að gleyma í örskamma stund hversu andstyggilegur kaptíalisminn er og hvað ég er sár út í sjálfa mig fyrir að hafa festststststst (man ekki hversu mörg stst eiga að vera í þessu orði) í honum (kaptitalismanum), ég hinn rauðhærði kommi sem þrammaði um götur Reykjavíkurborgar með mótmælaskilti íklædd róstóttum buxum og stuttri mussu, þá átti ég ekki neitt, ekki einu sinni skuldir. Nú á ég bæði eignir og skuldir, allavega fram til klukkan 16:00, eftir þann tíma þá á ég bara skuldirnar og fæ ekki einu sinni að stöffa mig almennilega með Cadburys og Sirius – shit man…
Æi, ég er á lífi og get unað sátt við að hafa á mínum kroppi 15 aukakíló sem duga mér í kreppunni sem er framundan. Fitan hitar líka kroppinn og eiginmaðurinn laumar sér að honum á napri haustnóttu og stelur sér hita. Það er bara ágætt að vera ekki horrengla og eiga ekkert upp á að hlaupa.
er einmitt svo glöð að hafa lífrænt ræktaðan hitapoka framan á mér, sem á bara eftir að stækka