Ég ætla að hætta því á morgun að eta allt þetta drasl i skrjáfandi bréfum. Það liggur færiband frá nammihillum búðanna beint í munninn á mér og ég hef ekki einu sinni fyrir því að tyggja. Að þessu leiti likist ég Homer Simpson nema að ég hef enn hár á höfði og aðeins stærri brjóst en hann. En á morgun ætla ég að hætta að leita huggunar í mat og koma mér á gamla góða rólið. Ekki seinna vænna ef ég ætla að útskrifast næsta vor sem stúdína með 30 ára edrúmennsku að baki. Tvöfalt gaman og skálað í Kristal.
Ég lofa, ekkert færibandaát á morgun