Lífið hefur aldrei verið ókeypis. Lífið er þjáning sagði Búdda, hvað svo sem það þýðir. Þegar maður horfir í kringum sig eru sjáanleg merki andlegrar og tilfinningalegrar þjáninga. Þeir sem ekki þjást af líkamlegum sjúkdómum sem draga þá til dauða eru fastir í feni þjáninga missis, þunglyndis og kvíða. Ég get alveg sagt það án þess að roðna að nef mitt sé snubbótt og að ég sjái ekki lengra en það er! – Það sem ég á við er að það er svo djö…. erfitt að skoða og sjá það sem virkilega skiptir máli í lífinu. Þessi innri friður og ró sem gera það að verkum að það er þægilegt að vera í kringum mann. Sjálf hef ég aldrei komist í þær álnir að fólk elskaði mig og dáði vegna efnahagslegs ríkidæmis míns. Sumir, bara fáir hafa séð í gegnum minn holduga líkama og beint inn í sálartetrið og fundið þar gæðalega konu, sem þráir frið og spekt.
Sver það, þegar ég fæ ekki innihaldið úr skrjáfandi glitpappír þá fer ég að rugla á skjávef. Held ég sé í fráhvarfi strax á öðrum degi V&M, og getið nú hvað það er.
Það kostar 405.000 að gera við Subaruinn eftir áreksturinn. Ég neita að fá þennan bensínhák til baka og krefst þess að TM greiði mér bílinn að fullu til baka á því markaðsverði sem er í gangi. Ég vil ekki bjóða sjálfri mér og barnabörnunum upp á rúnt í þeirri truntu aftur.
Bið að heilsa að sinni.