Grænklædda konan er komin aftur á kreik eftir að verið í felum í langan tíma. Hún skýst út fyrir hússins dyr í skjóli nætur eftir að hafa daðrað við V&M en þau tvö deila með sér leyndarmáli sem ekki má upplýsast fyrr en næsta vor. Fylgdarsveinar grænklæddu konunnar voru ljóshærð gella á fimmtugsaldri og lítill Sjarmi sem voffaði sig í gegnum limgerði er urðu á vegi þeirra þriggja. Sæl, sátt og þreytt eftir 5 km göngu hlakkar þeirri grænklæddu að koma sér í hvílu, því á morgun munu hún og V&M eiga saman yndislegan dag.
Gúdd næt