Feeds:
Færslur
Ummæli

Archive for nóvember, 2008

Logn á eftir storminum

Jæja, ég er ekki eins brjáluð og ég var í fyrradag þar sem ég lét öllum illum látum.  Skrifaði pósta hingað og þangað og tuðaði eins og uppblásin eiginkonudúkka þegar loftið lekur úr henni.
Ég hef ekki stjórn á því sem er að gerast í efnahagsmálum þjóðarinnar.  Ég er farþegi á þessu skipi og fæ ekki [...]

Read Full Post »

Ég segi ekki að ég sé rólyndismanneskja en það hefur bráð af mér eftir því sem árin færast yfir mig, en nú langar mig til að berja all verulega á steinsteyptum veggjum Kauþings niðri í Borgartúni.  Allt mitt/okkar virðist vera farið og við sem héldum að hluti þess sparifés sem við ætluðum að geyma til [...]

Read Full Post »

Ætli þetta verði ekki eitt af þessum blótsbloggum, fullt af ótta og sjálfsvorkun?  Það er stundum ágætis krydd við utanborðs vandamál (þjóðfélagslega ruglið sem er í gangi) að fyllast kvíða yfir eigin tilveru, vanköntum og sérvalsheimsku. Ég er svo hrædd að ég rek við upp í vindinn í hvert skipti sem þáttun, liðun, jafna og [...]

Read Full Post »

Fellur fé falla frændur

Ég er ekki að segja að Bjarni framsókn og Guðni formaður séu frændur mínir.  Báðir hafa kosið af hverfa af vettvangi pólitíkusunnar.  Bjarni vegna óþekktarskaps síns og tímabundinnar illgirni í garð Valgerðar og Guðni? Jah… afþví að hann finnur ekki lengur neina samstöðu innan flokksins? Veit ekki því ég var ekki fluga á vegg.   Verð [...]

Read Full Post »

Austurvöllur

Ég fór á mótmælafundinn á Austurvelli í gær, að vísu bara hluta af honum þar sem ég er alltaf upptekin til rúmlega þrjú á laugardögum.  Ég hlustaði á snilldarræðu Andra Snæs rithöfundar og var stemmningin góð ef svo mætti kalla, fólk rólegt og yfirvegað og mótmælum komið mjög vel á framfæri.  Mér líkar vel við [...]

Read Full Post »

Draumarugl

Mig er stöðugt að dreyma og er eins og unglingur hvað það varðar.  Best er að kúra undir heitri sæng og hverfa á vit draumaheims, en ég kann það ekki lengur.  Fullorðnisárin hafa breytt mér og gert mig að manneskju sem vill hafa reglu á hlutunu og það þýðir að vakna á sama tíma á [...]

Read Full Post »

Hvað?

Maður spyr sig, hvað er í gangi?  Ég er ekki farin að átta mig almennilega á þeirri breytingu sem er að verða í þjóðfélagi okkar.  Finn að sjálfsögðu fyrir því sem nálægt mér er s.s. eigið atvinnuleysi (sem ég fylli upp í með skólanámi), breytingar á högum eiginmannsins og það að bankinn hefur tekið traustataki [...]

Read Full Post »

Nýtt minni

Dellin mín er komin með stærra minni og ver ég nú minni tíma í tölvunni þar sem ég þarf ekki lengur að bíða eftir því að hún komi upp með síður eða pósta.  Þvílíkur munur, vildi bara að þetta væri hægt með heilann á manni. 
Mér finnst eins og það sé komið vor og að kýrnar [...]

Read Full Post »

Drusla

Það er nú aldeilis að maður tekur niður fyrir sig og lætur ástand þjóðfélagsins hafa þau áhrif á sig að öll segl eru dregin saman og nurlað út í eitt.  TM keypti Subaruinn og við keyptum okkur í staðin yngri bíl (KIA) sem var keyrður minna og í ofanálag sjálfskiptur.  Kaupverð bílsins var 1/4 af [...]

Read Full Post »

Bíllaus

Þá er TM búin að leysa til sín bílinn svo frúin þarf að nota strætó næstu daga brrrr, það verður smá kuldalegt.  Þær eru ótrúlegar breytingarnar sem eru búnar að eiga sér stað undanfarin mánuð.  Mjög miklar breytingar sem eiga eftir að draga dilk á eftir sér.  Mér finnst eins og öll kurl séu ekki [...]

Read Full Post »