Nú hefur maður það á tilfinningunni að sumri sé að ljúka og dásamlegt haust í vændum. Ég hlakka til því lífsklukkan breytist og allt verður miklu fastara formi. Ég er að hugsa hvort ég eigi að skella mér í líkamsrækarstöð eða láta göngur duga? Ætli ég taki bara ekki einn góðan daginn hvatvísa ákvörðun um það. Mér finnst nefninlega svo gott að ganga eins og veðrið hefur verið í sumar. Hinsvegar er kannski meira um félagstengsl þegar maður er í leikfimi eða í sal með öðru fólki.
Var að koma úr sundi og minni vikulegu vigtun. 200gr upp þessa vikuna enda engin furða þegar rjómasósur eru borðaðar með nautasteikinni og gratínkartöflum. Hef engar áhyggjur af þessu þar sem þyngdartap var töluvert sl. 2 vikur.
Frábær OA fundur í hádeginu í gær og hlakka ég til fleiri funda í vikunni. Ein get ég þetta ekki.